Fréttir | 19. júlí 2019 - kl. 20:13
Auglýst eftir tilboðum í skólamáltíðir

Blönduósbær auglýsir á vef sínum eftir tilboðum í skólamáltíðir Blönduskóla og leikskólans Barnabæjar skólaárið 2019-2020. Verkið felst í framleiðslu hádegisverða fyrir nemendur og starfsfólk, flutningi frá framleiðslustað til skóla og frá skóla að matarhléi loknu hvern dag. Útboðsgögn fást afhent í tölvupósti og skal senda beiðni þar um á blonduos@blonduos.is. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Blönduósbæjar klukkan 11:00 þann 30. júlí næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga