Flotbryggjur á Skagaströnd. Ljósm: skagastrond.is / Árni Geir Ingvarsson.
Flotbryggjur á Skagaströnd. Ljósm: skagastrond.is / Árni Geir Ingvarsson.
Fréttir | 26. júlí 2019 - kl. 07:44
Flotbryggjur settar upp á Skagaströnd

Í gær var lokið við hluta af uppsetningu á nýjum flotbryggjum fyrir minni báta á Skagaströnd. Um uppsetningu sá Kristján Óli Hjaltason eigandi Króla ehf. ásamt fríðum flokki manna, að því er segir á vef Skagastrandar. Þar kemur fram að frágangi vegna framkvæmdanna sé ekki lokið og hafi bryggjurnar því ekki verið teknar í notkun. Formlega opnun verður tilkynnt síðar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga