Fréttir | 31. júlí 2019 - kl. 08:55
Pönkað á Laugarbakka

Verslunarmannahelgin nálgast með öllum sínum útihátíðum og skemmtunum. Ein slík verður haldin á Laugarbakka í Miðfirði en það er Norðanpaunk, árlegt ættarmót pönkara, sem nú er haldið í sjötta sinn. Það er félag áhugamanna um íslenska jaðartónlist sem heldur Norðanpaunk og fá meðlimir einir aðgang. Alls koma yfir 40 hljómsveitir fram, bæði íslenskar og erlendar, m.a. Bagdad Brothers, Pink street boys, Kaleikir, Korter í flog, Dead Herring, Úlfúð og Dauðyflin.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.facebook.com/nordanpaunk eða áwww.nordanpaunk.org.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga