Hamarsbúð
Hamarsbúð
Fréttir | 31. júlí 2019 - kl. 09:05
Kaffihlaðborð í Hamarsbúð

Í áraraðir hafa Húsfreyjurnar boðið upp á veislur í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Um verslunarmannahelgina ætla þær að bjóða upp á kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að þeirra hætti. Opið verður milli klukkan 14 og 18, laugardaginn 3. ágúst og sunnudaginn 4. ágúst. Eydís Ósk Indriðadóttir mun sýna ljósmyndir.

Verð er 2.000 krónur fyrir 13 ára og eldri en 1.000 krónur fyrir 6-12 ára. Enginn posi á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga