Lax úr Vatnsdalsá.
Lax úr Vatnsdalsá.
Fréttir | 08. ágúst 2019 - kl. 08:27
Þrjár húnvetnskar laxveiðiár á topp 10 lista LV

Samkvæmt vikulegum lista Landssambands veiðifélaga hafa 767 laxar veiðst í Miðfjarðará sem af er sumri og var vikuveiðin 120 laxar. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 1.682 laxar í ánni. Miðfjarðará hefur setið í þriðja sæti yfir aflahæstu ár landsins í allt sumar en hefur nú færst niður í fjórða sætið. Blanda er í sjötta sæti með 541 lax og var vikuveiðin 61 lax en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 832 laxar í ánni. Í tíunda sæti er Laxá á Ásum með 358 laxa en þar var vikuveiðin 83 laxar. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 467 laxar í ánni.

Veiðst hafa 203 laxar í Vatnsdalsá, 198 í Víðidalsá og 120 í Hrútafjarðará. Ekki voru komnar inn nýjar tölur á listann frá Svartá.

Skoðaðu vikulegan lista Landssambands veiðifélaga hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga