Fréttir | 14. ágúst 2019 - kl. 13:12
Jazz Kvartettinn Monk Keys með útgáfutónleika á Hótel Blöndu

Jazz Kvartettinn Monk Keys verður með útgáfutónleika  á Hótel Blöndu næstkomandi föstudag 16. ágúst kl. 21:00. Þar munu þeir spila ljúfa tóna fyrir gesti og gangandi.

Það kostar litlar 2.000 kr. inn og er fólk beðið um að koma með reiðufé. Hlökkum til að sjá ykkur.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga