Tilkynningar | 14. ágúst 2019 - kl. 14:54
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi

Vegna forfalla er laust pláss ( 1 herbergi) í ferð eldri borgara til Fljótsdalshéraðs 24.-26. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar gefa: Sigurjón  í s. 4524993/8628603  og Kolbrún í s. 4524224/6903124. Farið verður frá Blönduósi laugardaginn 24. ágúst. Gist í tvær nætur á hótelinu Svartaskógi, sem er á einkar fallegum stað á Héraði. Sunnudaginn 25. ágúst verða áhugaverða staði á Fljótsdalshéraði skoðaðir undir leiðsögn Þorsteins Bergssonar, sem þekktur er úr Útsvarskeppni sveitarfélaga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga