Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:49 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:49 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:49 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:49 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:49 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:49 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Um helgina verður þess minnst í Skagabyggð og á Skagaströnd að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Árnasonar landsbókavarðar og þjóðsagnasafnara en hann fæddist að Hofi í Skagabyggð 17. ágúst 1819. Dagskráin hefst með messu klukkan 11 í Hofskirkju á laugardaginn þar sem Árni faðir Jóns þjónaði. Klukkan 12 afhjúpar Dagný Úlfarsdóttir oddviti Skagabyggðar söguskilti við félagsheimilið Skagabúð og Vilhelm Vilhelmsson flytur erindi um einn ábúenda að Hofi.
Málþing hefst í Fellsborg á Skagaströnd klukkan 13:30 en þar mun Dagný Úlfarsdóttir bjóða gesti velkomna og forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson flytja ávarp. Þrír fræðimenn: Rósa Þorsteinsdóttir, Kristján Sveinsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir munu flytja erindi um Jón Árnason. Á milli atburða verður flutt tónlist undir stjórn Hugrúnar Hallgrímsdóttur.
Að loknu málþinginu klukkan 16:30 mun Halldór Ólafsson oddviti Skagastrandar flytja ávarp og forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhjúpa lágmynd af Jón Árnasyni við Spákonufellshöfða, en hún er eftir Helga Gíslason myndhöggvara. Þá verður opnuð sögusýning um Jón Árnason í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í Gamla kaupfélagshúsinu klukkan 17:30.
Sunnudaginn 18. ágúst verður gengið á Spákonufell klukkan 9 undir leiðsögn Ólafs Bernódussonar, en safnast verður saman við Fellsborg og þaðan verður ekið að golfskálanum þar sem gangan hefst. Allir eru hvattir til að mæta og eru velkomnir.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |