Fréttir | 16. ágúst 2019 - kl. 10:46
Myndlistasýning í Íþróttamiðstöðinni

Myndlistasýning Jóhanns Sigurðssonar, borins og barnfædds Blönduósings, stendur enn yfir í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á opnunartíma miðstöðvarinnar. Jóhann sýnir þar um 20 myndir sem hann hefur málað á síðastliðnum tveimur árum. Jóhann, sem er matreiðslumeistari að mennt, tók upp á því fyrir nokkru síðan að mála myndir sér til ánægju, eins og hann segir sjálfur frá. Þetta er önnur sýning hans en hún opnaði formlega í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á Húnavöku.

Verk eftir Jóhann má sjá á Facebooksíðu hans josig art.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga