Tilkynningar | 21. ágúst 2019 - kl. 09:24
Golfkennsla í Vatnahverfi

Golfkennarinn John Garner verður á golfvellinum í Vatnahverfi dagana 23.-24. ágúst og er þetta síðasta heimsókn hans í sumar. Á föstudaginn geta krakkar 6-10 ára fengið kennslu í golfi klukkan 16:00-17:30. Klukkan 17:30-18:30 á föstudaginn verður boðið upp á kvennagolf og á laugardaginn geta krakkar 10-15 ára fengið kennslu í golfi klukkan 10:00-11:30. Öll þessi kennsla er í boði golfklúbbsins.

Hægt er að panta einkatíma, paratíma og hóptíma eftir klukkan 12 á laugardaginn. Skráning á jgjon@mi.is eða í síma 8644846.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga