Ásmundur Einar. Ljósm: stjornarradid.is
Ásmundur Einar. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 23. ágúst 2019 - kl. 15:01
Aðgerðir til að styðja við húsnæðismál á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur nú ákveðið að hrinda í framkvæmd tillögum til að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni. Þess er vænst að fyrstu tillögur, þar á meðal að breytingar á lögum og reglugerðum, til að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni verði komnar til framkvæmda á haustdögum.

„Landsbyggðin hefur setið eftir þegar kemur að uppbyggingu í húsnæðismálum. Í ljósi jákvæðra athugasemda við tillögum að úrbótum munum við einhenda okkur í koma fram með nýjar reglugerðir og lagafrumvörp til að innleiða þær að fullu enda um mikilvægt hagsmunamál að ræða,” segir Ásmundur Einar í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Jákvæðar umsagnir hagsmunaaðila
Tillögurnar voru upphaflega lagðar fram í ríkisstjórn til kynningar í lok maí en í lok júlí voru þær birtar í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningi og öllum hagsmunaaðilum gafst tækifæri til að gefa álit. Þær umsagnir sem bárust eru allar jákvæðar í garð tillagnanna en einnig komu fram í þeim nokkrar gagnlegar ábendingar um þætti sem má skoða betur. Samband íslenskra sveitarfélaga hrósaði tillögunum og nefndi sérstaklega þá jákvæðu nálgun sem unnið hefur verið eftir í svokölluðu landsbyggðarverkefni sem félagsmálaráðuneytið og Íbúðalánasjóður settu af stað á síðasta ári.

Nýr lánaflokkur og byggðaframlag til byggingar leiguíbúða
Tillögur félags- og barnamálaráðherra byggja að stóru leyti á upplýsingum sem hafa komið í gegnum tilraunaverkefni með sjö sveitarfélögum, en því var ætlað að bregðast við alvarlegum vanda í húsnæðismálum á landsbyggðinni. Meðal reglugerðanna sem ráðuneytið er nú með í vinnslu má nefna heimild fyrir nýjum lánaflokki hjá Íbúðalánasjóði til að auðvelda sjóðnum að veita fjármögnun til verkefna á landsbyggðinni. Tryggja þurfi íbúum landsbyggðarinnar aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og fást á virkari markaðssvæðum.

Þá gera tillögurnar ráð fyrir að brugðist verði við skorti á hagkvæmu leiguhúsnæði með því að gera sveitarfélögum á landsbyggðinni kleift að byggja íbúðir í almenna leigukerfinu með stofnframlagi ríkisins. Heimilt verði að veita sérstakt byggðaframlag vegna leiguíbúða á svæðum þar sem misvægi ríkir á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs og þá verði heimildir sveitarfélaga til þess að leggja fram stofnframlög rýmkaðar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga