Sigrún Magna.
Sigrún Magna.
Tilkynningar | 26. ágúst 2019 - kl. 15:25
Íslensku konurnar og orgelið

Miðvikudagskvöldið 28. ágúst klukkan 20:00 leikur Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti í Akureyrarkirkju, á orgel Blönduóskirkju og bera tónleikarnir heitið Íslensku konurnar og orgelið.

Eins og nafnið gefur til kynna er eingöngu tónlist íslenskra kvenna á efnisskránni. Konur hafa hingað til ekki fengið mikla athygli sem orgeltónskáld en efnisskráin spannar samt tónlist í ýmsum stílum, stór verk og lítil, hugljúf og ljóðræn, gáskafull og dansandi.

Tónleikarnir eru tæplega klukkustundar langir, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga