Tilkynningar | 05. september 2019 - kl. 10:11
Blönduskóli óskar eftir lestrarömmum og lestraröfum
Tilkynning

Blönduskóli hefur verið svo lánsamur að frábærir einstaklingar hafa komið í skólann og hlustað á  börnin lesa fyrir sig og nú langar okkur að bæta í hópinn, því mikilvægi lesturs hefur marg sýnt sig. Það er þannig að „ömmur og afar“ koma í skóla og láta börn lesa fyrir sig. Við leitum því til ykkar – er einhver áhugasamur þarna úti sem á lausan klukkutíma á viku – eða fleiri? Athugið að þetta þurfa ekki að vera eiginlegar ömmur eða afar heldur einungis áhugasamir einstaklingar sem bjóða aðstoð sína. 

Endilega hafið samband við Auði ritara Blönduskóla í síma 452-4147 eða sendið tölvupóst á blonduskoli@blonduskoli.is.   

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga