Frá fundi með ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar. Ljósm: ssnv.is
Frá fundi með ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 07. september 2019 - kl. 09:29
Stjórn SSNV fundar með ráðherrum

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fundaði nýverið með nokkrum ráðherrum um málefni landshlutans. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar tók á móti hópnum í sínu ráðuneyti. Þaðan lá leið hópsins í Stjórnarráðið en þar tók Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á móti stjórnarmönnum. Að síðustu hitti hópurinn Sigurð Inga Jóhannsson, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Sagt er frá þessu á vef SSNV.

Þar kemur fram að staða landshlutans, framtíðarhorfur og tækifæri til eflingar og atvinnuuppbyggingar hafi verið til umræðu á fundunum og að í öllum tilfellum hafi fari fram gott samtal um framangreind mál. „Reglulegt samtal við ráðherra og þingmenn er afar mikilvægt til að miðla upplýsingum um stöðu svæðisins og þau verkefni sem heimamenn telja mikilvægust hverju sinni,“ segir á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga