Kvennaskólinn á Blönduósi
Kvennaskólinn á Blönduósi
Tilkynningar | 26. september 2019 - kl. 08:38
Aðalfundur Vina Kvennaskólans fimmtudaginn 26. september
Tilkynning frá stjórn

Vinir Kvennaskólans verða með aðalfund sinn í Kvennaskólanum fimmtudaginn 26. september kl. 20:00. 

Dagskrá: 

  • Venjuleg aðalfundarstörf 
  • Erindi: Ragnheiður Þórsdóttir kynnir okkur stöðuna á verkefninu Bridging Textiles to the Digital Future. Í verkefninu felst m.a. skráning á vefnaðarmunstrum, sem tilheyra Vinum Kvennaskólans og Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, í rafrænan gagnagrunn og uppsetningu vefsvæðis þar sem munstrin verða aðgengileg fyrir textíllistamenn, hönnuði og nemendur. 

Allir eru velkomnir á fundinn hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki og kaffi og meðlæti verður ekki af verri endanum frekar en venjulega. 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga