Fréttir | 17. september 2019 - kl. 11:51
Ráðstefna um stafrænar lausnir

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra opna verkefnið Digi2Market formlega með ráðstefnu um stafrænar lausnir í Menningarhúsinu Miðgarði miðvikudaginn 25. september klukkan 13. Markmið ráðstefnunnar er að kynna verkefnið og möguleika sýndarveruleika þegar kemur að markaðssetningu.

Á vef SSNV segir að markmið verkefnisins Digi2Market er að styðja við fyrirtæki á dreifbýlissvæðum sem eiga undir högg að sækja. Stefnt er að því að vinna með fyrirtækjum sem sjá sér hag í því að nýta sér stafræna markaðssetningu til að auka markaðshlutdeild sína. Þátttaka í verkefninu veitir fyrirtækjum hæfni og þekkingu í að nýta sér skynjaðan veruleika og sýndarveruleika í markaðssetningu og sölu á vöru og þjónustu. Fyrirtæki gætu nýtt sér þetta til að auka sölu á núverandi markaði eða til að ná inn á nýja markaði hérlendis eða erlendis. Þá er enn fremur stefnt að því að þátttaka í verkefninu stuðli að alþjóðlegum vexti fyrirtækja sem byggja á líffræðilegum auðlindum svæðisins; fiski, landbúnaði, skógrækt og öðrum tengdum iðnaði.

Verkefnið fékk styrk úr Norðuráætlanasjóði (NPA) í lok árs 2018, en það er atvinnu- og byggðaþróunarsjóður sem er ætlað að stuðla að samstarfsverkefnum sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum viðfangsefnum samstarfslandanna. NPA svæðið samanstendur af norðurhéruðum Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands, Írlands ásamt Norður-Írlandi, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Það er Údarás na Gaeltachta á Írlandi sem leiðir verkefnið.

Allir velkomnir á ráðstefnuna í Miðgarði og þá sérstaklega fyrirtæki sem sjá sér möguleika í þátttöku í verkefninu. Ráðstefnunni verður streymt á Facebook síðu samtakanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga