Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:26 0 0°C
Laxárdalsh. 12:26 0 0°C
Vatnsskarð 12:26 0 0°C
Þverárfjall 12:26 0 0°C
Kjalarnes 12:26 0 0°C
Hafnarfjall 12:26 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Unnur og Þórdís við undirritun viðaukans. Ljósm: ssnv.is
Unnur og Þórdís við undirritun viðaukans. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 20. september 2019 - kl. 14:56
Viðauki gerður við samning um mat á uppbyggingu nýrrar iðnaðarstarfsemi í A-Hún.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar og nýsköpunarráðherra og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra undirrituðu í dag viðauka við þjónustusamning um mat á uppbyggingu nýrrar iðnaðarstarfsemi í Austur-Húnavatnssýslu. Með viðaukanum veitir ráðuneytið samtökunum 21 milljón króna í tímabundinn styrk til greiningar á iðnaðarkostum sem gætu hentað Norðurlandi vestra, gerð kynningarefnis og beinnar kynningar fyrir fjárfestum. Markmið þessa samnings er að fjölga fyrirtækjum og störfum á Norðurlandi vestra. Sagt er frá þessu á vef SSNV.

Átak til atvinnuuppbyggingar
Á undanförnum árum hefur verið unnið að uppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu. Byggir starfið á þingsályktunartillögu frá 2013 um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar. Tilgangurinn var að skapa þann fjölda starfa sem nauðsynlegur er til að stöðva varanlega fólksfækkun í Austur-Húnavatnssýslu. Markmiðið með átakinu var einnig að efla samkeppnishæfni svæðisins og vinna að markaðssetningu þess, svo sem fyrir gagnaver.

Árið 2016 gerðu ráðuneytið og SSNV þjónustusamning um greiningu á möguleikum á uppbygging nýrrar iðnaðarstarfsemi á svæðinu. Tók samningurinn mið af mikilvægi þess að efla fjölbreytt atvinnulíf á svæðinu sem nýti eftir kostum fyrirliggjandi innviði. Horft var til þess að bæði gæti verið um að ræða uppbyggingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og stærri iðnaðarstarfsemi.

Framtakið stuðlaði að gagnaversuppbyggingu á Blönduósi
Verkefninu var skipt í tvo hluta. Í fyrsta áfanga var dregin upp heilstæð mynd af aðstæðum til uppbyggingar nýrrar iðnaðarstarfsemi sem telst fullnægjandi til að vekja áhuga og svara spurningum þeirra sem eru líklegir til að fjárfesta í atvinnustarfsemi á svæðinu. Þessum þætti lauk í febrúar 2018 með útgáfu skýrslu Mannvits þar sem m.a. var farið yfir stöðu innviða og skipulagsmála, upplýsingar um iðnaðarlóðir, orkuvinnslugetu svæðisins, auðlindir þess og greiningu á tækifærum. Framtakið stuðlaði m.a. að uppbyggingu gagnavera á Blönduósi.

Seinni hluti verkefnisins, sá sem hér er samið um, snýst um að leggja mat á það hversu raunhæfar aðrar hugmyndir í skýrslu Mannvits eru út frá m.a. alþjóðlegri tækni- og viðskiptaþróun. Einnig á að gera viðskiptaáætlun og markaðsgreiningu fyrir þau verkefni sem talin eru raunhæf og fara í beina markaðssetningu á þeim verkefnum sem metin eru raunhæfust. Viðaukasamningurinn gildir til loka janúar 2022.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið