Ljósm: hunathing.is
Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 28. september 2019 - kl. 10:07
Vígsla viðbyggingar við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Viðbygging Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra á Hvammstanga verður vígð á þriðjudaginn, 1. október klukkan 18.  Af því tilefni er íbúum og gestum boðið til móttöku og gefst tækifæri á að skoða aðstöðuna og njóta veitinga. Ávörp flytja Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Guðmundur Grétar Magnússon, fulltrúi menningarráðs Húnaþings vestra og fulltrúi frá Ungmennasambandi Vestur-Húnvetninga sem er fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Þá verða tónlistaratriði frá sönghópnum Jóma og hestafimleikasýning.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga