Höfðaskóli. Ljósm: skagastrond.is
Höfðaskóli. Ljósm: skagastrond.is
Fréttir | 01. október 2019 - kl. 21:51
Höfðaskóli 80 ára – opið hús

Í ár fagnar Höfðaskóli 80 ára afmæli og að því tilefni verður skólinn með opið hús þriðjudaginn 8. október. Dagskrá hefst með skrúðgöngu frá Bjarmanesi klukkan 14. Eftir það býðst gestum og gangandi að skoða núverandi skólahúsnæði, þau verkefni sem nemendur hafa unnið við í þemaviku undanfarna daga og þiggja léttar veitingar. Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga