Fréttir | 02. október 2019 - kl. 17:34
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til hádegis 29. október næstkomandi. Framkvæmdasjóðurinn styrkir verkefni á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga jafnt sem einkaaðila sem uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum:
a) Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru.
b) Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og náttúruvernd.
c) Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefna sem eru styrkhæf skv. liðum a eða b.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins og reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða hér á vefnum undir www.ferdamalastofa.is/umsoknir.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun veita umsækjendum leiðbeiningar við undirbúning og gerð umsókna þar til auglýstum umsóknarfresti lýkur.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamálastofu sem aðgengileg er á www.ferdamalastofa.is/umsoknir og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um umsóknaferlið.
Umsóknarfrestur er til hádegis þriðjudaginn 29. október 2019. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.