Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:10 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:10 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:10 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:10 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:10 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:10 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Viðbyggingin við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga var vígð á þriðjudaginn. Með tilkomu hennar er aðstaða í Íþróttamiðstöðinni orðin hin besta og þjónusta við íbúana eykst verulega. Anddyrið var stækkað og móttaka og aðkoma gesta orðin góð. Við vígsluathöfnina fór Þorleifur Karl Eggertsson oddviti Húnaþings vestra yfir sögu byggingarinnar sem var að mestu unnin af heimamönnum.
Ráðbarður sf. sá um hönnun hússins sem hófst árið 2016. Fyrsta skóflustungan var tekinn um mitt ár 2017 og var uppsteypu lokið vorið 2018 og húsinu lokað þá um sumarið. Tók þá við frágangur innanhúss og utan sem lauk nú í haust. Stærð viðbyggingarinnar er 300 fermetrar.
Aðstaða til íþróttaiðkunar hefur batnað verulega með góðum þrektækjasal með einstöku útsýni yfir fjörðinn og nýjum tækjum og búnaði. Einnig minni sal sem gefur möguleika á að vera með hóptíma og fjölbreyttar æfingar. Markmiðið er að koma til móts við fjölbreyttan notendahóp á öllum aldri.
Aðstaða starfsfólks og kennara hefur batnað sömuleiðis Góð áhaldageymsla er í húsinu auk þess sem geymslupláss hefur aukist. Aðgengi fyrir fatlaða hefur verið bætt með tilkomu lyftu og nýrrar snyrtinga fyrir fatlaða, einnig er nýtt dómaraherbergi með sturtuaðstöðu. Auk þess var eldri búningsaðstaða tekin upp að hluta, loftræsting og myndavélakerfi endurnýjað.
Þessar breytingar skapa ný tækifæri til að halda stærri íþróttaviðburði og hægt er að bjóða íþróttafélögum um land allt upp á fyrirtaks aðstöðu fyrir æfingahelgar.
Að lokinni yfirferð Þorleifs Karls tók fulltrúi ungmennaráðs Húnaþings vestra, Guðmundur Grétar Magnússon til máls og að lokum Anton Scheel Birgisson framkvæmdastjóri Ungmennasambands vestur Húnvetninga. Dagskránni lauk með metnaðarfullri sýningu ungmenna sem æfa hestafimleika hjá hestamannafélaginu Þyt.
Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og á Facebook síðu sveitarfélagsins má sjá myndir frá athöfninni.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |