Tilkynningar | 10. október 2019 - kl. 13:08
Starfsmaður óskast á Heimilið við Skúlabraut

Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi leitar eftir starfsmanni. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, um framtíðarstarf er að ræða. Starfshlutfall er 83%. Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkrafa: Gerð er krafa um bílpróf.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 20. okt. 2019.

Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, arijohann@skagafjordur.is, 893-6673, 452-4960.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga