Fréttir | 18. október 2019 - kl. 10:20
Kaldavatnslaust vestan Blöndu í dag

Vegna tenginga á stofnlögn vatnsveitu Blönduóss vestan við Blöndubrú verður lokað fyrir kalda vatnið í dag, föstudaginn 18. október, frá klukkan 13:00. Stefnt er að því að lokunin vari að hámarki í 2 til 3 klukkustundir, að því er segir í tilkynningu á vef Blönduósbæjar. Notendur vatnsveitunnar vestan Blöndu munu því verða kaldavatnslausir á meðan viðgerð stendur yfir. 

Um er að ræða eftirtaldar götur og hús: Brekkubyggð, Garðabyggð, Aðalgata, Brimslóð, Blöndubyggð, Hnjúkabyggð, Flúðabakki 1, 3, 4, og 6, Sólvangur, Kleifar, Fálkagerði, Fornihvammur, Húnabær, hesthúsin í Arnargerði og við gömlu tamningastöðina.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga