Tilkynningar | 31. október 2019 - kl. 09:39
Leikhúsferð eldri borgara
Frá Félagi eldir borgara

Á vegum Félags eldri borgara í Húnaþingi verður farin leikhúsferð að Melum í Hörgársveit, að sjá leikritið „Gauragang" eftir Ólaf Hauk Símonarson. Farið verður frá Hnitbjörgum klukkan 14 föstudaginn 8. nóvember og ekið til Akureyrar þar sem fyrirhugað er að fá sér að borða. Að því loknu verður ekið að félagsheimilinu á Melum þar sem sýningin hefst klukkan 20. Að sýningu lokinni verður ekið rakleitt aftur heim. Enn eru sæti laus og síðustu forvöð að skrá sig.

Miðaverð er kr. 2.500. Félag eldri borgara greiðir fyrir rútuna sem fer með hópinn en þátttakendur í ferðinni greiða sjálfir fyrir matinn sem þeir panta sér á Akureyri.

Pantanir og nánari upplýsingar hjá Kolbrúnu sími 690 3124 og Sigrúnu í síma 864 0538.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga