Fréttir | 21. október 2019 - kl. 15:19
Er styrkur í þér?

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2020. Veittir eru styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs. Umsóknarfrestur er til klukkan 16, miðvikudaginn 20. nóvember næstkomandi.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Norðurlands vestra.

Sjá nánar á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga