Fréttir | 03. nóvember 2019 - kl. 10:21
Haustfundur FEBH
Frá Félagi eldir borgara

Haustfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi verður þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 15 á Þverbraut 1 á Blönduósi (Harmonikkusal). Gestur fundarins verður Sigurður J. Ágústsson, Blönduósingur og sagnamaður. Fluttar verða hugleiðingar frá ferð félagsins í sumar, sem þrír ferðafélaganna tóku að sér að  setja á blað.

Fjallað verður um vetrarstarfið framundan og  félagsmenn hvattir til að koma með hugmyndir um starfsemina.

Kaffiveitingar í boði félagsins.

Gaman væri að sjá sem flesta til að hlusta, spjalla og njóta veitinga.

Nýjir félagar alltaf velkomnir. Takið daginn frá.

Stjórn  FEBH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga