Tilkynningar | 27. október 2019 - kl. 08:53
Afréttarlönd til leigu fyrir rjúpnaveiði

Sjálfseignarstofnunin Auðkúluheiði auglýsir tvö eignarlönd sín (afréttarlönd), til leigu til rjúpnaveiða. Annarsvegar er um að ræða svonefnt Hrossahólf sem er framan við Hrafnabjörg og Gafl í Svínadal, rétt um 4.000 ha að stærð og hins vegar Þröm sem er land sunnan og vestan við Eldjárnsstaði í Blöndudal, rétt um 1.800 ha að stærð.

Rétt er að geta þess að rjúpnaveiði er óheimil öðrum en leigutaka á þessum landssvæðum. Nánari upplýsingar gefur Jón Gíslason, Stóra-Búrfelli í síma 868 3750. Umsóknarfrestur er til 30. október 2019.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga