Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska verkefnastjóri. Ljósm: hunathing.is
Anton Scheel Birgisson og Liljana Milenkoska verkefnastjóri. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 27. október 2019 - kl. 09:59
Hlýjar gjafir handa sýrlensku börnunum

Anton Scheel Birgisson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, kom færandi hendi á skrifstofu sveitarfélagsins Húnaþings vestra í síðustu viku. Fyrir hönd ömmu sinnar, Helgu Kristinsdóttur frá Þorlákshöfn, afhenti hann öllum sýrlensku börnunum á Hvammstanga vettlinga og ullarsokka.

Helga er 80 ára og þegar hún heyrði af komu flóttamannanna í Húnaþing vestra þá vildi hún leggja sitt af mörkum og sagðist ekki hafa neitt betra að gera en prjóna á þau þrettán börn sem komu á Hvammstanga. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra þaðan sem meðfylgjandi mynd er fengin.

Á myndinni tekur Liljana Milenkoska við gjöfinni fyrir hönd sýrlensku barnanna og við færum Helgu Kristinsdóttur þakkir fyrir hlýhuginn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga