Fréttir | 28. október 2019 - kl. 07:09
Kormákur vill verða fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Ungmennafélagið Kormákur á Hvammstanga sækist eftir að verða fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og stefnir á að hljóta viðurkenninguna á næstunni. Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, fundaði með stjórn og framkvæmdastjóra Kormáks nýverið og fór yfir vinnuna framundan. Kormákur býður upp á fjölþættan íþróttaskóla fyrir iðkendur 6-9 ára fjórum sinnum í viku í samfellu við skólastarf. Félagið býður svo upp á íþróttaæfingar í mörgum íþróttagreinum fyrir aldurinn þar á eftir og upp úr s.s. í knattspyrnu, sundi, körfuknattleik, blaki, fimleikum, badminton og frjálsíþróttum.

Þess má geta að Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga varð Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á ársþingi sambandsins í vor og hefur stefnt að því að aðildarfélögin verði Fyrirmyndarfélög.

Fyrirmyndarfélag og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga