Hestar
Hestar
Fréttir | 30. október 2019 - kl. 15:33
Tvö húnvetnsk hrossaræktarbú tilnefnd til ræktunarverðlauna

Hólabak í Austur-Húnavatnssýslu og Höfðabakki í Vestur-Húnavatnssýslu hafa verið tilnefnd af fagráði í hrossarækt til árlegra heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 30 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu, að því er fram kemur á vefnum bondi.is. Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi en í ár voru þrjú bú jöfn í tólfta sæti og verða því tilnefnd 14 bú að þessu sinni.

Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2019 sem haldin verður á Hótel Sögu á laugardaginn. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem einnig verður haldin á Hótel Sögu um kvöldið.

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:

Fet, Karl Wernersson
Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
Hlemmiskeið 3, Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir
Hólabak, Björn Magnússon
Höfðabakki, Sigrún Kristín Þórðardóttir og Sverrir Sigurðsson
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Rauðalækur, Eva Dyröy, Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Kristján G. Ríkharðsson
Stóra-Hof, Bæring Sigurbjörnsson og Kolbrún Jónsdóttir
Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
Strandarhjáleiga, Sigurlín Óskardóttir, Þormar Andrésson og fjölskylda
Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Sjá nánar á bondi.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga