Fréttir | 30. október 2019 - kl. 20:35
Neyðarkarlinn til sölu á morgun og næstu daga
Tilkynning frá Björgunarfélaginu Blöndu á Blönduósi

Sala neyðarkallsins hefst á morgun, fimmtudaginn 31. október. Þá munu félagar Björgunarfélagsins Blöndu ganga í hús á Blönduósi og einnig verða sölumenn í N1 Nesti. Næstu daga munum þeir síðan selja í N1, Kjörbúðinni og fara í sveitirnar.

Neyðarkallinn í ár er með dróna í höndunum en drónatæknin hefur verið notuð við leit og björgun í vaxandi mæli síðustu ár.

Neyðarkallinn kostar 2.500 kr. Þeir sem hafa ekki áhuga á að eignast neyðarkallinn en vilja samt styrkja félagið er bent á bankareikning Bf. Blöndu: 0307-26-1999 kt: 671299-2569.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga