Fréttir | 07. nóvember 2019 - kl. 13:21
Auglýst eftir umsóknum í húsafriðunarsjóð

Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2020. Umsækjendum er bent á að lesa vel allar þær leiðbeiningar sem koma fram fram á eyðublaði sem hægt er að nálgast á heimasíðu Minjastofnunar, bæði í upphafi þess og neðanmáli.

Síðasti dagur til að skila umsóknum er 1. desember 2019. Ekki verður tekin afstaða til umsókna sem berast eftir það. Gert er ráð fyrir að úthlutun liggi fyrir eigi síðar en 15. mars 2020.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga