Staðsetningar stöðvanna eru merktar með rauðu 150kw og gulu 50kw á kortinu. Mynd: orkustofnun.is
Staðsetningar stöðvanna eru merktar með rauðu 150kw og gulu 50kw á kortinu. Mynd: orkustofnun.is
Fréttir | 13. nóvember 2019 - kl. 07:03
Fleiri styrkir til uppsetningar hleðslustöðva

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar á 150kw hraðhleðslustöðvum víðsvegar um land, þar á meðal á Blönduósi og við Staðarskála. Nýverið var tilkynnt um úthlutun styrkja að fjárhæð 30,3 m.kr. til uppsetningar á hleðslustöðvum við hótel og gististaði víða um land og fékk Húnavatnshreppur styrk til að setja upp stöð á Húnavöllum og Farfuglar ses. fengu styrk fyrir hleðslustöð að Blöndubyggð 10 á Blönduósi.

Styrkirnir frá Orkusjóði núna er til uppsetningar á 43 150kw stöðvum og einni 50kw stöð. Heildarupphæð þessara styrkja nemur 226,8 m.kr.

Orka náttúrunnar fékk 9,4 m.kr. styrk til uppsetningar á tveimur hleðslustöðvum við Staðarskála og Ísorka fékk tæpar 8,3 m.kr. styrk til að setja upp eina stöð á Blönduósi.

Samtals hefur því verið úthlutað styrkjum að upphæð 257,1 m.kr. Styrkirnir nema 50% af áætluðum kostnaði við uppsetningu stöðvanna. Því er ljóst að á næstunni verður unnið að uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla fyrir rúman hálfan milljarð króna.

Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum.

Hér má sjá yfirlit yfir styrkþega og staðsetningu hleðslustöðvanna.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga