Frá óráðstefnunni. Ljósm: ssnv.is
Frá óráðstefnunni. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 15. nóvember 2019 - kl. 11:42
Mál krufin á óráðstefnu

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra var haldinn á Laugarbakka í Miðfirði á þriðjudaginn. Dagurinn var að þessu sinni haldinn í formi „Óráðstefnu“, þar sem dagskráin var ákveðin á staðnum af fundargestum, sem lögðu til tillögur að fundarefni. Eftir að fimmtán atriði höfðu verið valin til að ræða, hófust um 30 óráðstefnugestir handa við að kryfja þessi mál, sem öll snerta ferðaþjónustuna á svæðinu.

Sagt er frá þessu á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þar segir að í framhaldinu verði unnið úr málunum og að þau muni t.d. nýtast við skilgreiningu áhersluverkefna sóknaráætlunar.  

Eftir að málefnavinnu lauk hlýddu gestir á Sigurð Ragnar Eyjólfsson knattspyrnuþjálfara gefa nokkur góð ráð byggðum á reynslu afreksíþróttafólks og geta hjálpað öllum að ná betri árangri á sínu lífi og starfi.  Það voru Ferðamálafélögin á Norðurlandi vestra og SSNV sem stóðu að Haustdeginum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga