Fréttir | 17. nóvember 2019 - kl. 15:20
Auglýst eftir verkefnisstjóra iðnaðar

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra vilja ráða verkefnisstjóra iðnaðar. Í auglýsingu segir að um sé að ræða nýtt og spennandi verkefni sem hafi það að markmiði að laða fjárfestingar í landshlutann til að fjölga þar störfum. Ráðið er í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Meðal verkefni er markaðssetning landshlutans sem fýsilegs fjárfestingarkosts og að koma auga á tækifæri til atvinnuskapandi fjárfestinga.

Meðal verkefna:

  • Mat á fyrirliggjandi hugmyndum um iðnaðaruppbyggingu á Norðurlandi vestra.
  • Markaðssetning landshlutans sem fýsilegs fjárfestingarkosts, þ.m.t. gerð kynningarefnis, bein markaðssetning, samskipti við fjárfesta og fleira.
  • Áframhaldandi greining á innviðum.
  • Gerð viðskiptaáætlana og markaðsgreininga.
  • Samskipti við hagsmunaaðila.
  • Koma auga á tækifæri til atvinnuskapandi fjárfestinga í landshlutanum.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Haldbær þekking/reynsla af rekstri. Reynsla af fjárfestingum og atvinnuuppbyggingu er kostur.
  • Þekking á greiningu iðnaðarkosta m.t.t. alþjóðlegrar tækni- og viðskiptaþróunar er kostur.
  • Þekking/reynsla af markaðsmálum.
  • Reynsla af verkefnisstjórnun.
  • Góð almenn tölvufærni.
  • Samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri SSNV, Unnur Valborg Hilmarsdóttir í netfangið unnur@ssnv.is. Umsóknarfrestur er til og með 2. desember næstkomandi á netfangið ssnv@ssnv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga