Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 17. nóvember 2019 - kl. 15:32
Leigufélagið Bústaður auglýsir íbúðir

Leigufélagið Bústaður hses. í Húnaþingi vestra auglýsir eftir umsóknum um íbúðir í almenna íbúðaleigukerfinu. Í boði eru sex þriggja herbergja íbúðir að Lindarvegi 5 á Hvammstanga og er stærð íbúðar 93 fermetrar. Íbúðirnar verða afhentar í ársbyrjun 2020.

Markmið leigufélagsins með byggingu almennra íbúða er að bæta úr brýnni þörf á íbúðarhúsnæði í Húnaþingi vestra og um leið bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum samkvæmt lögum um almennar leiguíbúðir við upphaf leigu. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir.

Með umsókn skal fylgja afrit af skattframtali síðasta árs og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjanda. Umsóknarfrestur er til og með 6. desember 

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á vef Húnaþings vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga