Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:52 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnaþings vestra vill ekki að land innan marka sveitarfélagsins verði hluti fyrirhugaðs þjóðgarðs á miðhálendinu. Á það bæði við land í beinni eigu þess og þjóðlendur í afréttareign innan marka sveitarfélagsins. Á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku var fjallað um tillögu nefndar um stofnun miðhálendisþjóðarðs og tekur sveitarstjórn undir bókun byggðarráðs frá því í ágúst síðastliðnum.
Sveitarstjórnin áréttar að samkvæmt lögum sé skipulagsvald, þ.e. vinnsla og samþykkt svæðis-, aðal- og deiliskipulags í höndum sveitarfélaga. Það sé því ekki í verkahring ráðherraskipaðrar nefndar, ráðherra eða Alþingis að hafa með beinum hætti áhrif á skipulag sveitarfélaga með því að gera tillögu að legu þjóðgarðs á miðhálendinu innan marka þeirra.
Þá segir í fundargerð sveitarstjórnar frá því í síðustu viku:
„Áherslur er varða stjórnskipun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands fela í sér flutning á stefnumörkun, umsjón og rekstri frá sveitarfélögum til svæðisráða. Þessar hugmyndir takmarka áhrif sveitarfélaga til þess að móta sér stefnu til að mynda hvað varðar uppbyggingu innviða, atvinnumál, landnýtingu og landvernd. Sveitarstjórn gagnrýnir að fyrirliggjandi textadrög feli í sér hugmyndir um færslu á valdheimildum sveitarstjórna til svæðisráða. Þannig flyst ákvarðanataka frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum sveitarfélaga til kjörinna fulltrúa annarra sveitarfélaga, embættismanna og hagsmunahópa. Sveitarstjórn leggur áherslu á að í dag ríkir engin óvissa um stjórn svæða innan marka sveitarfélagsins. Sveitarstjórn telur að fyrirliggjandi tillaga nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands feli í sér verulega skerðingu á valdheimildum sveitarfélaga og réttindum íbúa þeirra. Í fyrirliggjandi textadrögum þar sem fjallað er um markmið með stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er ekki lýst brýnni nauðsyn fyrir stofnun hans. Hugmyndir um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu virðast fyrst og fremst tilkomnar til þess að styrkja eignar- eða ráðstöfunarrétt ríkisins yfir landi á hálendi Íslands.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |