Gagnaverið á Blönduósi. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Gagnaverið á Blönduósi. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Fréttir | 19. nóvember 2019 - kl. 15:29
100 Gb/s Hraðbraut til gagnavers á Blönduósi

Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt nýja heildsölugjaldskrá Mílu fyrir 100 Gb/s Hraðbrautir og nýjan tengistað fyrir 100 Gb/s Hraðbraut til gagnavers á Blönduósi. Mánaðarverð fyrir 1 Gb/s og 10 Gb/s Hraðbrautarsambönd sem og stofngjaldið mun haldast óbreytt þar til stofnlínugjaldskrá Mílu verður endurskoðuð næst, að því er segir á vef stofnunarinnar.

Þar kemur einnig fram að hraðbrautarsambönd Mílu hafi hingað til verið takmarkaðar við Höfuðborgarsvæðið og gagnaver í Reykjanesbæ, þ.e. innan við 50 km frá Reykjavík. Því hafi þurft að taka tillit til meiri vegalengdar til Blönduóss en til fyrirliggjandi tengistaða Hraðbrautarsambanda Mílu þar sem undirliggjandi gjaldskrá sem Hraðbrautarsamböndin byggi á sé km háð. Gjaldskráin fyrir 100 Gb/s Hraðbrautarsambönd er núna skipt í tvo flokka eftir vegalengd, undir 50 km og yfir 100 km.

Sjá nánar á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga