Fréttir | 21. nóvember 2019 - kl. 17:58
Umferðaróhöpp vegna hálku

Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra í dag. Engin alvarleg slys urðu á fólki en talsvert eignatjón, að því er segir í frétt á vef Ríkisútvarpsins. Lögreglan segir mjög varasamar aðstæður hafa skapast á svæðinu vegna hálku og hvetur fólk til að fara varlega.

Á Vatnsnesvegi valt bíll sem í voru þrír erlendir ferðamenn og voru þeir fluttir á heilsugæsluna á Blönduósi til aðhlynningar. Meiðsl eru ekki talin alvarleg. Þá missti ökumaður stjórn á bíl sínum í Langadal en nýtt vegrið við veginn bjargaði því að bíllinn féll ekki ofan í gil. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Þriðja óhappið varð á Siglufjarðarvegi þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og hafnaði utan vegar.

Höskuldur Erlingsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir í samtali við Ríkisútvarpið að Vegagerðin hafi verið kölluð út til að hálkuverja vegi. „Það byrjaði að rigna upp úr hádegi. Við það mynduðust mjög varasamar aðstæður. Við hvetjum fólk til að fara sérstaklega varlega,“ segir Höskuldur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga