Fréttir | 27. nóvember 2019 - kl. 12:17
Jólabasar í Skagabúð

Jólabasar Kvenfélagsins Heklu verður í Skagabúð á sunnudaginn, 1. desember klukkan 14-17. Þar verður ýmislegt til sölu eins og jólakort og pappír, gott úrval af heimaunninni vöru og handverki. Heitt súkkulaði og meðlæti selt á 1.000 krónur fyrir eldri en 12 ára, 500 krónur fyrir 7-12 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.

Hægt er að panta söluborð hjá Árnýju í síma 452 2745, stórt borð kostar 2.000 krónur og lítið borð 1.500 krónur. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir að koma og eiga notalega aðventustund á sunnudaginn í Skagabúð.

Ekki er tekið á móti greiðslukortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga