Fréttir | 28. nóvember 2019 - kl. 13:27
Aðventukvöld í Hólaneskirkju

Sunnudaginn 1. desember klukkan 18 verður aðventukvöld í Hólaneskirkju. Kveikt verður á ljósum aðventukransins og á jólatrénu í kirkjunni. Kirkjukórinn, sunnudagaskólabörn og Barnakór Skagastrandar flytja falleg jólalög undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur, organista og kórstjóra og Ástrósar Elísdóttur kórstjóra. Fermingarbörn flytja helgileik.

Ástrós Elísdóttir segir jólasögu og Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur flytur jólahugleiðingu og friðarbæn á aðventu. Eigum öll saman hátíðlega stund í ljósi aðventunnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga