Fréttir | 28. nóvember 2019 - kl. 15:59
Málþing um bætta þjónustu og samræmt verklag í heimilisofbeldismálum

Samráðshópur um heimilisofbeldi á Norðurlandi vestra hélt á dögunum málþing um bætta þjónustu og samræmt verklag í heimilisofbeldismálum. Samráðshópurinn tók til starfa í desember 2018 og frá þeim tíma hafa félagsþjónustur, barnavernd, lögregluembættið og heilbrigðisstarfsfólk svæðisins unnið að bættu verklagi í heimilisofbeldismálum. Nú hafa félagsþjónustur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra skrifað undir samstarfssamning við Lögreglustjórann á Norðurlandi vestra um verklagið sem miðar að því að bæta þjónustu við þolendur og gerendur heimilisofbeldis. Sagt er frá þessu á vef Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu.

Boðið var til málþings þar sem annars vegar samkomulagið og verklagið var kynnt, og hins vegar var sagt frá niðurstöðum tveggja rannsókna um úrræði og þjónustu fyrir þolendur heimilisofbeldis. Þá var einnig til kynningar þjónusta Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi.

Málþingið, sem haldið var í Félagsheimilinu á Blönduósi, var vel sótt en tæplega 80 manns sóttu það. Vilko, Félagsheimilið á Blönduósi og Kaupfélag Húnaþings vestra buðu upp á kaffiveitingar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga