Mynd frá vef Hagstofu Ãslands.
Mynd frá vef Hagstofu Ãslands.
Fréttir | 02. desember 2019 - kl. 13:04
Hlutfall innflytjenda lægst á Norðurlandi vestra

Hlutfall innflytjenda, fyrstu og annarrar kynslóðar, er lægst á Norðurlandi vestra samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Í ársbyrjun bjuggu 35.341 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 63,6% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 26,6% innflytjenda af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 19% mannfjöldans voru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra eins og áður sagði en þar voru 7,5% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar og ömmur. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru hér 19.172 einstaklingar frá Póllandi eða 38,1% allra innflytjenda. Þar á eftir koma einstaklingar frá Litháen (5,7%) og Filippseyjum (3,9%). Pólskir karlar eru 40,9% allra karlkyns innflytjenda eða 11.405 af 27.854. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,4%) og síðan karlar með uppruna frá Lettlandi (4,2%). Pólskar konur eru 34,6% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,9%), þá konur frá Litháen (4,9%).

Innflytjendum heldur áfram að fjölga
Í byrjun árs voru 50.272 innflytjendur á Íslandi eða 14,1% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 12,6% landsmanna (43.736). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 14,1%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, þeir voru 4.861 í fyrra en eru nú 5.263. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 15,6% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, og eru nú 6,9% mannfjöldans.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga