Fréttir | 03. desember 2019 - kl. 15:46
Aðventukvöld Líflands Blönduósi

Aðventukvöld Líflands á Blönduósi verður haldið fimmtudagskvöldið 5. desember á milli klukkan 19 og 22 að Efstubraut 1. Í boði verður ljúf tónlist og léttar veitingar. Þá verða sérstakir aðventukvölds afslættir í boði aðeins þetta eina kvöld og 20% afsláttur af öllum fatnaði, skóm, reiðtygjum, hnökkum, hjálmum, hestavörum, gæludýrafóðri og gæludýravörum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga