Skjáskot af FB/N4
Skjáskot af FB/N4
Fréttir | 04. desember 2019 - kl. 09:36
Jólaóróaseggir Magnúsar

Í bílskúrnum við Sunnuveg á Skagaströnd situr Magnús Jónsson fyrrum sveitarstjóri og tálgar jólasveina sem hann kallar Jólaóróaseggi. Magnús var sveitarstjóri í 28 ár og hafði þar á undan setið í átta ár í sveitarstjórn og því þekktastur fyrir sín störf á sviði samfélags og sveitarstjórnarmála. Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 hitti handverksmanninn Magnús á dögunum og ræddi við hann um hvaðan áhuginn á því að tálga og skera út er sprottinn.

Innslagið má sjá á Facebook síðu N4 eða hér.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga