Frá æfingu í félagsheimilinu.
Frá æfingu í félagsheimilinu.
Fréttir | 06. desember 2019 - kl. 10:51
Heimsfrumsýning á Hvammstanga

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir barnaleikritið Skógarlíf í Félagsheimilinu á Hvammstanga helgina 13.-15. desember næstkomandi. Leikritið er sett upp í nýrri leikgerð leikstjórans Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður. Um heimsfrumsýningu er því að ræða. Leikgerðin er byggð á The Jungle book eftir Rudyard Kipling.

Á vef leikflokksins segir að áhorfendur fái að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþing vestra.

Sýningarnar verða 13.-15. desember og fer miðasala fram á www.leikflokkurinn.is.

Sýningarnar hefjast klukkan 20 föstudag og laugardag og klukkan 16 á sunnudag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga