Fréttir | 09. desember 2019 - kl. 19:35
Skólahald fellur niður vegna veðurs á morgun þriðjudag í grunnskólum Austur-Húnavatnssýslu; Höfðaskóla, Blönduskóla og Húnavallaskóla. Þá fellur allt skólahald niður í leik- og grunnskóla í Húnaþingi vestra. Kennsla fellur einnig niður hjá Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga, í það minnsta á Skagaströnd og Húnavöllum.