Ljósm: rarik.is
Ljósm: rarik.is
Fréttir | 11. desember 2019 - kl. 11:28
Unnið að því að koma rafmagni á

Á vef RARIK er birt staðan á truflunum í dreifikerfinu vegna óveðurs. Klukkan 8:30 var staðan þessi í Austur-Húnavatnssýslu: Talsvert hefur verið um truflanir frá því í gærdag. Rafmagn frá byggðalínu á Laxárvatni hefur verið að slá inn og út. Allt inni í augnablikinu nema Langidalur og Svínadalur sem eru báðir úti og ekki vitað hvenær hægt verður að koma rafmagn á þar.

Í Vestur-Húnavatnssýslu var staðan þessi: Aðveitustöðin við Hrútatungu fór út um miðjan dag í gær og þar með var rafmagnslaust að stórum hluta í Húnaþingi vestra. Við það rofnaði allt fjarskiptasamband við stöðina og ekki var hægt að fjarstýra stöðinni. Farið var á snjóbíl frá Hvammstanga og sóttist ferðin mjög hægt og eftir um 9 klst. ferðalag endaði bíllinn út af vegi og valt. Starfsmaður er nú kominn í Hrútatungu með slökkviliði og þar er allt í seltu. Verið er að hreinsa seltu af búnaði stöðvarinnar og vonast til að rafmagn komist a.m.k. á hluta af V-Hún þegar það er búið.

Í samtali við mbl.is segir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK að allt sé ófært innanbæjar á Blönduósi og Hvammstanga og því komist menn lítið áfram. Engu að síður verði allt gert sem hægt sé til að koma rafmagni á á þessu svæði sem fyrst. „„Vestur-Húnavatnssýslan er meira eða minna úti. Langidalurinn og Svínadalurinn eru líka úti núna. Það er verið að fara að skoða hvað veldur. Við vitum ekki hvað það er. Sama með Hvammstanga og Blönduós. Skagaströnd hefur verið að detta inn og út,“ segir Tryggvi á mbl.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga