Fréttir | 10. desember 2019 - kl. 11:24
AFMÆLINU FRESTAÐ UM “ÁKVEÐINN TÍMA
100 ára afmæli sjúkrahúss Hvammstanga

Í tilefni af 100 ára afmæli sjúkrahúss Hvammstanga býður Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga í afmæliskaffi í dag milli klukkan 14 og 18 í húsnæði sjúkrahússins að Spítalastíg 1. Árið 1919 var tekin í notkun fyrsta byggingin sem var sérstaklega reist fyrir heilbrigðisþjónustu á svæðinu, læknisbústaður sem stendur við Spítalastíg 1. Áður hafði héraðslæknir sinnt sjúklingum á heimili sínu.

Í dag verður tvívegis flutt dagskrá eða klukkan 14 og 16:30:

  • Guðmundur Haukur Sigurðsson stiklar á stóru yfir sögu sjúkrahúss Hvammstanga.
  • Tónlistaratriði

Litli jólabasarinn verður á sínum stað til styrktar félagsstarfinu á sjúkrahúsinu. Frammi mun liggja baukur þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að leggja í púkk og styrkja starfið.

Kvennabandið hefur veg og vanda af kaffiveitingum. Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga