Fréttir | 12. desember 2019 - kl. 14:31
Heimsfrumsýningu frestað um einn dag

Leikflokkur Húnaþings vestra ætlaði að frumsýna barnaleikritið Skógarlíf í Félagsheimilinu á Hvammstanga á morgun, föstudaginn 13. desember. Frumsýningunni hefur verið frestað um einn dag og verður laugardaginn 14. desember. Leikritið er sett upp í nýrri leikgerð leikstjórans Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður. Um heimsfrumsýningu er því að ræða. Leikgerðin er byggð á The Jungle book eftir Rudyard Kipling.

Á vef leikflokksins segir að áhorfendur fái að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþing vestra.

Sýningarnar verða 14.-15. desember og fer miðasala fram á www.leikflokkurinn.is.

Sýningin á laugardaginn hefst klukkan 20 og klukkan 16 á sunnudaginn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga